Harðkjarni
16.08.2006 17:22:04 / andri

NÝTT BLOGG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er víst kominn með nýtt blogg: http://theandri.blogger.com/

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 20:50:01 / andri

Drama

Ahh það besta sem ég geri er að pæla í drama, gerist ekki betra þegar líf manns verður eins og einn stór þáttur af Dawsons Creek. Allavega þá finnst mér það alveg dásamlegt þegar fólk talar um hvað eitthvað sé leiðinlegt og ætli aldrei að verða svona en svo gerist eitthvað og það verður nákvæmlega eins og það ætlaði EKKI að vera. Það pirrar mig mest þegar fólk þykist vera eitthvað sem það er ekki. Þykist skilja hvernig manni líður en veit það í rauninni ekki rassgat, svo er það kannski hissa afhverju maður missir svo samband við það.

Þið sem skiljið þetta eigið hrós skilið og ekki hugsa "en þú munnt örugglega gera það sama" og svar mitt við því er bara étið skít. Ég mun þroskast og ég mun eldast en ég mun ALDREI taka eitthvað fram yfir það sem mér þykir vænt um.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:26:42 / andri

Risinn upp frá dauðum!


Vá það er langt síðann ég hef bloggað. Ég eiginlega trúi því ekki þar sem mér finnst ég hafa skrifað þetta í gær. Alveg ótrúlegt og hálfgerð synd hvað tíminn líður hratt, sérstaklega þegar þú ert að skemmta þér. Ætli ég taki það ekki bara í vana að skrifa svona langt á milli, þá verður kannski eitthvað varið í þessi skrif mín.

Annars er maður bara að vinna á fullu núna og maður eyðir svona mest allri orkunni í það. Ef fólk hefur áhuga á að skoða hvað maður er að gera getur það farið á www.oryrki.net þar er hægt að skoða myndir, myndbönd, tónlist og allan fjandan sem við erum að gera þessar sjö vikur sem maður er að vinna. Svo var félagi minn að bjóða mér hugsanlega vinnu eftir þessa núverandi vinnu, vonandi gengur það allt því mér finnst mjög gaman að stússast í svona kvikmyndavinnslu.

Núna 22.júlí er svo ferðinni heitið til Austurríkis, sú ferð verður awesome, ég get ekki óskað eftir betra fólki að ferðast með, alveg sama hversu mikið bjátar á þú getur alltaf treyst á þetta fólk. Alveg yndisleg tilfining. Þetta er síðasti partur af ungmennaskiptum sem Ný-ung er búið að taka þátt í núna. Fyrst var þetta í Finnlandi svo hérna heima og loks núna í Austurríki. Það á víst að verða magnaður hiti þarna, annað heldur en veðrið hérna heima sem er vægast sagt búið að vera ömurlegt.

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira, kannski að ég skrifa eitthvað núna í næsta mánuði, who knows.



» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 23:44:13 / andri

Fuck This

Vitiði hvað? Ég sakna gömlu góðu daganna. Dagarnir sem bara liðu ánþess að maður þurfti að hafa áhyggjur af neinu. Sumardagar þegar sólin skein og maður fór bara út með græjurnar á hausnum, útilokaði sig frá öllu og maður mætti þessu yndislega fólki sem  brosir til manns í Grafarvogi. Maður fer framhjá kirkjunni sem lýsir kvöldið upp hjá manni og endurspeiglast í sjónum. Kyrðin sem myndast þegar það er logn og maður sér sjálfan sig í sjónum. Skógurinn litli sem er milli Grafarvogs og Grafarholts, sveitabærinn sem er þar og allir hestarnir og kýrnar. Gólfvöllurinn í hrauninu í Grafarholti og rólega andrúmsloftið sem er þar sem engin byggð er enþá. Allt þetta "makes my day" eins og sagt er í útlenskunni, vildi óska þess innilega að það væri komið sumar þó það sé svo sannarlega komið vor, nú vona ég bara að trén fara að springa og fuglarnir að syngja. Ég er kominn með nóg af þessum vetri.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 22:05:26 / andri

Draumur

Það er svoldið langt síðan ég hef bloggað en samt gott að taka sér smá bloggfrí, hreinsa hugan og þá verður maður kominn aftur í blogggírinn innan skamms. Ég vaknaði klukkan svona 07:10 í morgun alveg grútmyglaður og hálf slappur þannig ég tók mér fríi frá vinnu í dag. Ég fór aftur að sofa og dreymdi þennan stórfurðulega draum sem að í sannleika sagt var ég ekkert allt of ánægður með að hafa vaknað upp frá honum. Ætla ég að reyna að skrifa um þennan draum þótt að í köflum var hann mjög óskýr.

Ég var klárlega í honum og nokkrir fjölskyldumeðlimir líka eins og pabbi, afi heitinn, bróðir mömmu, bróðir pabba og svo þessi stelpa sem ég veit ekkert hver var. Það var verið að undirbúa eitthvað matarboð og voru allir á fullu og hafði enginn tíma fyrir neitt annað en að undirbúa matinn. Þetta var annaðhvort um jólin eða um páskana þar sem það var snjór úti og hátíðarskap í flestum. Ég man að ég var ekki heima, í rauninni veit ég ekkert hvar ég var því ég kannaðist ekkert við húsið, en þau herbergi sem ég var í var eldhúsið, stofan, baðherbergið og svona byrgðarkompa með mat í og svona. Þessi stelpa sem ég þekkti ekki var má eiginlega segja gullfalleg og man ég greinilega eftir henni. Hún var talsvert minni enn ég svona haushæð minni og með skollitað sítt hár. Þar sem allir aðrir voru á harðarspretti að undirbúa þetta matarboð þá hafði ég eiginlega engann til að tala við nema hana. Hún var að spurja mig að helling að hlutum og ég reyndi að svara henni eftir bestu getu. Svo allt í einu gerðist eitthvað, og svona eins og einhver tími væri liðinn (gerist oft að maður man ekki allan drauminn). Svo allt í einu stóð ég fyrir framan einhverja tölvu og þetta var greinilega tölvan hennar þar sem var búið að skrifa eitthvað persónulegt blogg (ekki svona blogg eins og þetta heldur svona persónulegra aðeins fyrir þig einan). Ég man nákvæmlega hvað stóð þarna og á ég ekki eftir að gleyma því í bráð. “Hann er ekki eins og hinir strákarnir sem ég hef kynnst, ég verð eiginlega að segja að ég hélt að hann væri svona typical ríkur leiðinlegur strákur þar sem báðir foreldrar hans eru háttsettir bankastarfsmenn.” Svo kom allt í einu svona eins og það vanti eitthvað því allt í einu var ég staddur einhverstaðar inn á baði þar sem var svona heitapottur. Allt í einu gengur þessi stelpa framhjá mér og ég sný mér við og gríp utan um hana svona aftanfrá, svo snýr hún sér við og ég horfi á hana og held þéttingsfast um hana eins og ég sé að fara eitthvað, svo allt í einu vaknaði ég...

Eins og ég segi þetta er bara einn grillaðasti draumur sem mig hefur dreymt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.12.2005 18:43:28 / andri

Smásaga: Heiður

Þar sem mér leiðist mjög og ekkert hefur verið skrifað hérna lengi ákvað ég að skella upp smásögu sem ég skrifaði um daginn þegar mér leiddist svipað mikið og núna. Ég skelli henni bara upp og endilega látið mig vita hvernig ykkur finnst sagan.

________________________________________________________________

Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég hitti hana fyrst. Við vorum bæði frá austurlandi, nánar tiltekið Egilstöðum.

Það var vetur, allt í kafi í snjó en þó þetta fallega veður, ekki ský á himni og blanka logn. Ég var 19 ára og var að leita mér af vinnu. Ég ákvað að fara á kaffihúsið þarna í bænum og fá mér einn kakóbolla til að ylja mér aðeins. Þar sem ég þekkti eigandann þá slapp ég við að borga í þetta skiptið. Ég sat við afgreiðsluborðið og leit í kringum mig yfir staðinn. Þá sá ég fegurstu sýn sem ég hef á æfinni séð.

Stelpa sat við eitt borðið í horninu á staðnum og var að glugga í einhver blöð, ég þekkti hana ekki og hélt því að hún væri ný flutt í bæinn. Ég spjallaði við hann Einar sem átti staðinn og spurði hver þetta væri. Hann svaraði að hún héti Heiður og væri á svipuðum aldri og ég. Ég brosti og gékk í áttina til hennar. Það var eitthvað sem heillaði mig við hana, veit ekki hvað það var en andskotinn ég ætlaði að komast að því.

Ég stóð yfir borðinu hennar en hún tók ekkert eftir mér þar sem hún var niðursokkin í einhverja grein í mogganum. Ég spurði hana hvort ég mætti setjast hjá henni. Hún átti greinilega ekki von á þessu þar sem hún tók augun af mogganum og leit undunaraugum á mig, ég stóð þarna eins og lítill skólastrákur og beið eftir svari og eftir nokkrar sekúndur sem liðu eins og mínútur jánkaði hún og benti mér á stól til að setjast. Ég fékk mér sæti og spurði hvað hún væri að lesa. Hún sagðist vera að lesa grein eftir þýskan stjórnmálamann um mengun á þýskalandi. Ég leit á hana undrunaraugum en þá sagðist hún vera að lesa fyrir skólann. Ég spurði hana til nafns svona uppá kurteisisakir og þá sagðist hún heita Heiður. Ég sagði eitthvað mjög bjánalegt eins og það er heiður að hitta þig Heiður ánþess að hugsa og mér leið eins og fífl þegar ég sagði þetta en þrátt fyrir leit hún uppúr mogganum og brosti til mín. Þetta var fegursta sýn sem ég hafði séð. Hún spurði mig hvað ég héti og ég sagðist heita Kári.

Ég var loksins kominn heim eftir erfiðan dag og settist niður fyrir framan sjónvarpið. Eftir smá stund pípti síminn, ég var að fá sms frá Heiður. Hún spurði mig hvort ég vildi kíkja eitthvað í bæinn, ég sendi henni til baka að ég væri að leiðinni.

Veturinn leið og við vorum orðnir bestu vinir.

Það var eitthvað í kringum maí þar sem ég fékk vinnu hjá bæjarvinnunni. Ég var kominn í vinnugallann minn og hitti svo vinnufélaga mína fyrir utan og við gengum niðrí bæ þar sem við áttum að vinna. Þegar þangað var komið brá mér heldur betur í brún því hún Heiður stóð þarna skælbrosandi í vinnugallanum. Hún gekk í áttina til mín þar sem ég stóð enn bara og gapti eins og fáviti. Hún tók utan um mig og hvíslaði “óvænt” í eyrað á mér. Ég hafði nefnilega ekki heyrt í henni í langann tíma. Hún sagðist hafa frétt af vinkonu sinni að ég hefði fengið vinnu hjá bæjarvinnunni og því hafi hún sótt líka um þar sem henni vantaði vinnu og hvergi væri betri félagsskapur en hjá mér. Ég tók þessu auðvitað mjög vel og var skælbrosandi marga daga eftir á.

Við unnum þarna hjá bæjarvinnunni tvö sumur í röð og ég get sagt það að þetta voru bestu sumur æfi minnar. Þriðja sumarið bauðst mér svo vinna annarstaðar með miklu betri launum sem iðnaðarmaður þannig auðvitað þuggði ég þá vinnu. Enn á ný missti ég og Heiður samband og hún fór að vinna sem skrifstofustúlka á læknastofunni í bænum en hún sendi mér sms reglulega þar sem við hittumst ekki það oft.

Dag einn mætti ég bara eins og vanalega klukkan 7 að þessari blokk sem við vorum að byggja en það var eitthvað í andrúmsloftinu sem mér líkaði ekki. Himininn var grámyglulegur og blankalogn úti. Ég var þarna uppi á fjórðu hæð að negla fjalir á eitt gólfið þarna þegar ég rakst í einhvern steypubitann og hrasaði niður. Ég gat ekki hreyft vöðva og mér leið eins og valtari hefði valtað yfir mig. Hringt var á sjúkrabíl og hann kom þarna á stundinni. Ég var keyrður á spítalann á Egilsstöðum en svo var sagt að ég þyrfti að fara til Reykjavíkur þar sem ég var mikið slasaður. Pantað var sjúkraflug og það var flogið með mig samstundis.

Sem betur fer var ég ekki lamaður en þó alvarlega brotinn á nokkrum stöðum. Ég lá þarna í rúmmi á borgarspítalanum þegar ég lít að hurðinni. Stendur Heiður ekki í dyragættinni háskælandi. Hún gengur að rúmminu mínu og ég spyr hana hvað sé að eins og ekkert hafi gerst. Hún horfir á mig alveg skelfingu lostin og hvíslar að mér “ég elska þig Kári, ég veit ekki hvað ég hefði gert hefðiru dáið” svo beygði hún sig niður og kyssti mig. Nákvæmlega á þessum tímapunkti var ég ósigrandi, ég hefði getað stoppað heilann her einn.

Eftir þetta mætti segja að við vorum titluð sem par og get ég sagt ykkur að án hennar hefði þetta verið enn verra. Ástin læknar öll sár.

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2005 20:56:17 / andri

Ice age is coming!

Skrítið að ég skuli allt í einu blogga svona oft finnst ykkur ekki en mér langaði að tala við einhvern og vitiði, mér datt ykkur strax í hug. Sum ykkar þekki ég og sum ykkar ekki og vitiði mér er alveg sama, þið eruð öll jöfn og enginn getur sagt ykkur annað. Annars ástæðan fyrir þessu bloggi er þessi: Ég þjáist af tilfiningarkrísu, ójá og ónei ég fór ekki til læknis og fékk þetta staðfest þetta er einungis frá mér komið og mitt mat. Mér líður fáránlega vel en það skrítna er að mér líður fáránlega ílla líka, ég veit ekki hvað skal segja, þetta er eins og þessar tilfiningar séu í reipitogi og ég sé í miðjunni. Ég held ég hafi of stór takmörk í lífinu, svo margt sem mig langar að gera og svo margir staðir sem mig langar að heimsækja. Ég vil gera svo margt, ég vil gera svo stóra hluti að ég get ekki lýst þeim. Ég vil segja þeim sem ég elska að ég elska þá en ég hef ekki kjarkinn og mun aldrei hafa hann. Örugglega eftir nokkur ár þegar ég mun lesa þetta á ég örugglega eftir að hlæja að hversu barnalegt þetta er en vitiði hvað? Mér er alveg sama, þetta er sá sem ég er núna og það getur ekkert breytt því!

Ég ætla að ljúka þessu bloggi með texta eftir hljómsveitina Radiohead og lagið þeirra Idioteque:

Who's in bunker, who's in bunker?
Women and children first
Women and children first
Women and children
I'll laugh until my head comes off
I swallow till I burst
Until I burst
Until I..

Who's in bunker, who's in bunker
I've seen too much
I haven't seen enough
You haven't seen enough
I'll laugh until my head comes off
Women and children first
And children first
And children..

Here I'm alive, everything all of the time
Here I'm alive, everything all of the time

Ice age coming, ice age coming
Let me hear both sides
Let me hear both sides
Let me hear both..

Ice age coming, ice age coming
Throw me in the fire
Throw me in the fire
Throw me in the..

We're not scaremongering
This is really happening, happening
We're not scaremongering
This is really happening, happening

Mobiles working
Mobiles chirping
Take the money and run
Take the money and run
Take the money..

Here I'm alive, everything all of the time
Background:
The first of the children


» 108 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 19:26:54 / andri

Flosi

Frekar langt síðan ég hef skrifað hérna, veit eiginlega ekki afhverju en ætli ég hafi bara ekki nennt því og haft ekkert til að skrifa um. Satt að segja hef ég ekkert merkilegt að segja núna frekar en vanalega, það er alltaf þannig að þegar þú hefur eitthvað merkilegt að segja þá ertu ekki með aðgang að bloggi til að skrifa. Ég væri örugglega orðinn rithöfundur ef ég gæti komist í tölvu þegar eitthvað liggur mér á hjarta. En svo þegar þú ert loksins á hólminn komið þá gjörsamlega detturu út, eins og tölvan hafi heilaþvegið mann eða eitthvað.

Annars er lítið að frétta, jú það er ekki langt síðan við komum frá Finnlandi, dásamlegt að fá tækifæri til að komast þangað aftur að hitta allt þetta dásamlega lið sem býr þar. Ferðin var mjög afslöppuð annað en hinar ferðirnar þar sem vanalega er stíft prógram allan daginn.

Ástæðan fyrir nafninu Flosi á þessu bloggi er aðallega útaf bandinu Munnríður sem ég er einmitt að hlusta á núna, algjörir meistarar og synd að þeir séu hættir held bara að þetta hafi verið eitt besta metalband sögunnar. Allavega nenni ég ekki að skrifa meira núna og ég ætla ekki að klukka neinn því það er bjánalegt að segja fólki að skrifa þegar það hefur ekkert að segja, ekkert gaman að lesa um hvað fólk er búið að borða í dag eða eitthvað annað jafn bjánalegt.

Lifið heil.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2005 16:43:37 / andri

Andri hress í vinnunni...

Þar sem ég hef alveg óendanlega mikið að gera í vinnunni hef ég ákeðið að skrifa hérna í þetta blogg mitt og það á íslensku því ég nenni ekki að skrifa á ensku núna, tekur of mikinn tíma. Allavega er ég ekki búinn að láta sjá mig á þessu bloggi í tæpan mánuð. Gott bloggfrí er samt gott þar sem maður hefur nóg að skrifa um.

Það eru tæpar 2 vikur síðan kallin var í Reykjadal að skemmta sér konunglega með öllu rugl liðinu þar en þó var þetta öðruvísi en öll hin skiptin og svoldið sérstakt að upplifa þennan stað svona öðruvísi eftir öll þessi ár sem maður hefur látið sjá sig þarna. Ég, Halldór og Gunni tókum svo upp hressa mynd í anda Jackass og Viva La Bam sem var alveg æðislegt. Fínt að fá svona útrás öðruhvoru.

Stuttu eftir Reykjadalinn skellti ég mér svo í bíó með crewinu á The Wedding Crashers, ekkert að þeirri mynd nema að í endanum þá klappaði fólk... Hvaða fífl klappar í bíó? Ég meina það er jafn gáfulegt og að klappa fyrir bílnum sínum þegar hann fer í gang eða eitthvað annað fáránlegt. Þetta minti mig skuggalega á þegar að fólk klappar í flugvél. Afhverju að klappa í flugvél? Er svona nauðsynlegt fyrir flugmennina að fá smá goodwill fyrir að lenda manni heilum og höldnum? Þá fór ég að hugsa hvað ef flugvélinn skyldi hrapa og fólk myndi ekki klappa í lokin hugsar þá flugmaðurinn með sér: "Shit marr, ekkert klapp, ég verð að standa mig betur næst".

Heyrðu já svo má ekki gleyma því að kallinn er orðinn sponseraður af Mountain Dew sem er nokkuð skondið, en þeir ákváðu víst að sponsa liðið á skjálfta með nóg af gosi.

En ég nenni ekki að skrifa meira í bili þannig ég bara bið að heilsa.


» 93 hafa sagt sína skoðun

29.07.2005 11:56:54 / andri

Versló

Long time since I wrote here so I figured I should write before I leave my hometown for two weeks and have no internet access. Some of my friends have been encouraging me to write and grant their wishes, woohoo. Well there is something bothering me but I don’t want to discus it here. It doesn’t concern you so shut up. He he.

 This weekend is the biggest travel weekend in Iceland because there is no working day on Monday. The heavy tax was taken of oil for cars few weeks back and this weekend truck drivers are going to protest by stopping all traffic out of the city. That pisses me of, we the tax payers have been paying the taxes for them and now when its over they are going to protest and destroy the weekend for some people, well these assholes don’t get my condolences.


» 89 hafa sagt sína skoðun

09.07.2005 12:53:43 / andri

Summer Andri...

Most of my blogs are always about me being depressed or something like that and I think people are getting tired of always reading the same bullshit over and over again. Guess I don’t know why I’m writing this, just felt like it. Like I said I’m not feeling that great but hey it’s not killing me or something like that I just think I should stop listening to Funeral Diner (you who have heard them understand).

This summer started great, good weather and great company, fresh ideas almost come to reality but then like a thunder from a clear sky it started to rain and it hasn’t stopped raining. The people that were inspired aren’t any more, it’s like everything is dying inside. Our goal, our purpose in life just washed away like nothing ever existed. I know this is dramatic but this is how I feel and I can’t change it. There is one thing that comforts me and that are my friends and my family, man I love you guys!

» 122 hafa sagt sína skoðun

15.06.2005 22:48:49 / andri

Another faded memory dies...

Why does life has to be so damn complicated and confusing? I hate it… I wish I could sort everything out by one movement or a simple sentence. Maybe I’m just tired or something but there is something bothering me and I can’t figure out what and that’s what I hate. This feeling that tears you up from inside and you don’t even know what it means or why you are feeling that way… its very similar the feeling I had when I was in school like I’m bored and shit but not bored because all my friends and family are around me it just makes me want to cry. Hate these down days.

I wrote an article for one of the biggest newspapers in Iceland about my trip to Holland to see Arnhem Hardcore Meeting. I hope you people will like it. There are bunch of cliché’s in there and shit but it’s all the truth. Well I’m a lazy ass so this is all for now. I’ll post lyrics here below with my favorite band when I’m sad or depressed. The band is called Funeral Diner and the song name is It Is Good That We Never Met.

 

 



Plans made to be executed at a later point in time. "The truth is what we make it, not what you see, so ask no questions." And derisive comments, disregard, and humiliation are what we reap from trying to change. They know now exactly where they stand and kneel. Mostly the latter, it's been building up to this all along. Every meticulous step. And it was missed by all of us. Walls built out of self righteousness will keep us apart, and now we are easier targets. So those in favor take note to exploit every weakness that we show you, almost as if we want to be destroyed. Yes, we do have a deathwish. So do your worst.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2005 22:29:39 / andri

Another day goes by...

This day has been horrible, I don’t know why tough, well as a matter of fact I do but I don’t want it to be because of that reason… Now you are all probably wondering why I’m writing in English but that’s so all the people in the world can understand me and my feelings and you could say that I was kind of experimenting my self or broading my horizon. Its great exercise to write in English and I use my Word to help me spell things if I’m not sure how.

 

 



I went to Iron Maiden day before yesterday and it was nice, not that great, didn’t like the sound, it was too weak for my taste. Then yesterday I went to another concert MOTU-Fest now you could say that, that was a great concerts and the bands from USA Paint It Black was awesome.

 

 



Now back to the day to day. It wasn’t so great well I could say it was my fault and it probably was (some part at least) but this is just silly. I’m in a group called Ný-ung and we have this two summer job project’s going on and my friend ‘runs’ the other one and he has some issue with the group I’m in, don’t ask me why but I would really like to know why that is. Well I’m getting tired so I’m just going to go to bed, so see ya all.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2005 02:48:44 / andri

Yesterday

Jahérna, kallinn bara orðinn stutthærður, ójá. Var orðinn frekar pirraður á síða hárinu þannig að ég lét bara vaða í gær og lét klippa það stutt, veit samt ekki hvort ég láti laga það, er ekki alveg 100% ánægður með það en þetta er þó mun skárra en að vera með hárin sífelt í augunum og geta ekki séð shit út.

Allavega nóg með það, skólinn búinn og núna bara 3 mánuðir af algjöru tjilli, úff ég er ánægður með það. Þó er ég ekkert búinn að vera það ánægður eitthvað, veit ekki alveg afhverju. Kannski þarf ég að létta einhverju af mér, segja ákveðinni manneskju eitthvað, eitthvað sem mig hefur langað að segja lengi, veit ekki hvort ég hafi kjarkinn til þess. Svona tilfining er rusl, þoli ekki að líða svona en hey ekkert sem ég get gert í því.

Í næstu viku koma svo útlendingarnir í heimsókn, vonandi fæ ég einhvern tíma þar til að hugsa, finnst ég þurfa á því að halda. Þetta verður awesome ferð ójá, ójá.

Ég nenni ekki að skrifa meira í bili, bara svona næturblogg hjá mér, er búinn að horfa á of mikið af Anime, það hefur skaðleg áhrif á heilann...



Sparks

Where have you been all along. Did you forget about our favourit song.
Your eyes don´t shine anymore. Did you forget abour our favourit song.

Where have you been all along. You´ve been to busy dying on the floor.
We met and there was nothing to say. You´re too busy dying every day.

The things we said
the things we shared won´t go away
The things we did
the things we made won´t go away.
Cheers to my bones,another birthday.

My words mean nothing to you. The years didn´t treat you well.
My thoughts mean nothing to you.The years didn´t treat you well at all.

My words mean nothing to you. Where did we go wrong. My thoughts mean nothing to you. Where did we go wrong my love.

The roses in your hands turned to rusty nails. But I can see the sparks deep inside
of you...


» 98 hafa sagt sína skoðun

27.04.2005 20:33:05 / andri

Hugsanir að handan

Ég vill byrja á að þakka lesendum síðunar minnar fyrir að nenna að lesa þessa þvælu en núna fyrir stuttu fékk ég 2000undustu heimsóknina mína. Ótrúlegt alveg hvað þetta flýgur alveg áfram, líka ótrúlegt hvað ég hef nennt þessu lengi miða við hvað ég hef litla sem enga þolinmæði. Samt hef ég ekki alveg skrifað daglega, ég hef tekið nokkur brake en oftast byrjað aftur þegar mér liggur eitthvað verulega á hjarta. Nóg með það samt og "on with the butter" eins og sagt er.

Ég er búinn að vera ágætlega hress þessa dagana, góða veðrið úti og svona spilar inn í það og er ég alveg ótrúlega sáttur við það, fann bara hvernig það lifnaði alveg yfir mér þegar það fór að hlýna, eins og ég hefði legið í dvala allan veturinn. Skólinn loksins búinn og bara ein prófvika eftir sem ég tek létt og svo verður sko slappað af, hell yeah! Sofið langt fram yfir hádegi og bölvuð fyllerý öll kvöld (he he, nei ég er ekki byrjaður að drekka, dont worry elskurnar mínar). Þó mér líði svo ágætlega þá finnst mér eins og það vanti eitthvað, eins og einmana eða eitthvað því um líkt, get samt ekki svarað þessu alveg. Ekki það að ég eigi enga vini eða neitt þannig, ég á marga frábæra vini sérstaklega í skólanum og svo gamli góði vinahópurinn, það er bara eitthvað annað. Kannski að ég þurfi bara að fara redda mér kærustu eða eitthvað hehe.

Ég er allavega búinn að fá þá útrás sem mig vantaði, líður bara nokkuð vel núna. Ef þið segið að þetta hafi verið og fæmið blogg slæ ég ykkur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4